sunnudagur, júní 04, 2006
miðvikudagur, maí 24, 2006
Jahá...
| Your Scholastic Strength Is Deep Thinking |
![]() You aren't afraid to delve head first into a difficult subject, with mastery as your goal. You are talented at adapting, motivating others, managing resources, and analyzing risk. You should major in: Philosophy Music Theology Art History Foreign language |
fimmtudagur, maí 11, 2006
Hjálp á hægri kantinum...
Hver kann að laga þennan blogger?!!
..þetta er farið að pirra mig dáltið mikið að hafa tenglana mína þarna á botninum...

fimmtudagur, maí 04, 2006
Ahhh...
...fjarnámið búið -í bili að minnsta kosti ;-)
Notalegt að geta slappað af á kvöldin eftir vinnu... en það verður líklega ekki lengi... Best að hafa nóg að gera :-)

miðvikudagur, apríl 26, 2006
Til hamingju Ísland að ég fæddist hér!!!
Þá er 25. aldursárið hafið.
Fyrir um 20 árum fannst lítilli mannveru ferlega skrítið að hugsa til þess að verða einhvern tímann í alvörunni fullorðin. Eiga eftir að mega gera allt sem maður vill, þegar maður vill og eins og maður vill...?! Vera ekki lengur of lítil til að vera með eldri systkinunum því hjá fullorðna fólkinu eru allir (næstum) jafngamlir. Eiga ekki lengur bara sitt herbergi heldur alveg heilt hús. Finnast grænmeti gott.
"Þegar ég verð stór..." virtist svo fjarlægt og að sjá sjálfa sig fyrir sér í huganum var eins og að horfa á einhverja ókunnuga manneskju. Árið tvöþúsundogeitthvað var nú bara eitthvað til að flissa yfir, algjör vitleysa meðan maður sat út á túni, fylgdist með pabba á traktornum hring eftir hring og nefið náði varla upp yfir fíflana.
Fullorðin telst ég nú líklega vera, samkvæmt tímatalinu að minnsta kosti. Hitt er aftur á móti annað mál hvar á lífsleiðinni það gerðist að ég steig það skref og varð ókunnuga konan sem nú horfir til baka og sér þennan veruleika barnsins með allt öðrum augum.
Þetta litla "ég" sem á heima í hjartanu er þó voðalega mikið eins og það var frá upphafi og verður það sennilega áfram, bara alltaf örlítið meðvitaðri og fróðari með hverju árinu.
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar :-)

fimmtudagur, apríl 20, 2006
Sumarið er tíminn...
Í sól og sumaryl ég söngla lítið lag..hljómar í útvarpinu *stekkuraðglugganum* Hvar,hvar,hvar..?!! Eh...ég sé bara snjó og meiri snjó!!
Er sem sagt mætt í vinnuna aftur eftir notalegt páskafrí sem einkenndist af svefni. Elskulega fjórhjólið mitt tók á móti mér og ákvað svona í tilefni dagsins að hrökkva í gang eftir að hann Orri hafði lagt hendur sínar yfir það. Það hefur líklega bara verið í samúðarverkfalli á föstudaginn langa því ekkert athugavert er við það...nema hvað það er skítugt! :-)
En aftur að sumrinu...hef á tilfinningunni að þetta sumar verði geggjað og er með fiðring í maganum yfir því. Afhverju? Af því að ég ætla til USA í yogaskóla í ágúst!!! Jei! Skólinn er í West Stockbridge og mun ég fljúga til Boston og gista eina nótt þar. Í þessari fyrstu ferð verð ég 12 daga og byrjar svo lokastigið í Janúar sem er þá í fjarnámi. Get ekki beðið!!
Well...best að halda áfram að vinna...

laugardagur, apríl 08, 2006
Dauðasyndin mín...
|
Hehehehe...gat nú verið að það væri hégómagirndin..ég er alveg að missa mig í þessum prófum! Spennandi fréttir á næsta leiti...stei tjúned!! :-)